Microsoft Office villuleitarverkfæri 2016 – íslenska
Með Microsoft Office-villuleitarverkfærum er hægt að gera breytingar á öðrum tungumálum.
Mikilvægt! Val á tungumáli hér að neðan mun breyta öllu innihaldi síðunnar á það tungumál.
Version:
2016
Date Published:
25.5.2016
File Name:
proofingtools2016_is-is-x64.exe
proofingtools2016_is-is-x86.exe
File Size:
1.7 MB
1.6 MB
Viltu kanna stafsetningu á tungumáli sem ekki er sjálfkrafa sett upp í Office? Þetta er rétti staðurinn til þess. Í Microsoft Office-villuleitarverkfærum er að finna öll tiltæk villuleitarverkfæri fyrir Office á þessu tungumáli. Settu verkfærið einfaldlega upp, endurræstu Office og þá geturðu byrjað að nota villuleitarverkfærin fyrir tungumálið þitt.Studd stýrikerfi
Windows 7, Windows 8, Windows Server 2008 R2
Þetta niðurhal virkar með eftirfarandi forritum:- Microsoft Office Excel 2016
- Microsoft Office OneNote 2016
- Microsoft Office Outlook 2016
- Microsoft Office PowerPoint 2016
- Microsoft Office Word 2016
- Til að setja sóttu skrána upp:
Settu upp villuleitarverkfærin:
- Sæktu skrána með því að smella á hnappinn „Sækja“ (að ofan) og vistaðu skrána á harða diskinn.
- Keyrðu uppsetningarforritið.
- Á síðunni „Lesa leyfisskilmála Microsoft-hugbúnaðar“ skaltu fara yfir skilmálana, velja gátreitinn „Smelltu hér til að samþykkja leyfisskilmála Microsoft-hugbúnaðar“ og smella síðan á „Halda áfram“.
- Uppsetningarforritið fer í gang og setur upp villuleitarverkfærin.
- Þegar uppsetningunni lýkur skaltu endurræsa þau Office-forrit sem eru opin.
Notkunarleiðbeiningar: Notaðu villuleitarverkfærin með hefðbundnum hætti – núna ættu þau að birtast fyrir tungumálið sem verið var að setja upp. Þú getur til dæmis stillt tungumál villuleitarinnar á nýja tungumálið ef þú vilt kanna stafsetninguna (ef boðið er upp á það) – ef þú vilt læra hvernig þetta er gert skaltu kíkja á Skiptu á milli tungumála með tungumálastikunni
Til að fjarlægja þetta niðurhal:- Veldu „Stillingar“ í upphafsvalmyndinni og smelltu síðan á „Stjórnborð“.
- Tvísmelltu á „Bæta við/fjarlægja forrit“.
- Á listanum yfir uppsett forrit skaltu velja „Microsoft Office villuleitarverkfæri 2016 – íslenska“ og smella síðan á „Fjarlægja“ eða „Bæta við/fjarlægja“. Ef svargluggi birtist skaltu fylgja leiðbeiningunum til að fjarlægja forritið.
- Smelltu á „Já“ eða „Í lagi“ til að staðfesta að þú viljir fjarlægja forritið.