Microsoft® Office Language Interface Pack 2013 – íslenska
Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska hefur að geyma þýtt notandaviðmót fyrir mörg Microsoft Office 2013-forrit.
Mikilvægt! Val á tungumáli hér að neðan mun breyta öllu innihaldi síðunnar á það tungumál.
Version:
2013
Date Published:
25.2.2013
File Name:
languageinterfacepack-x64-is-is.exe
languageinterfacepack-x86-is-is.exe
File Size:
13.9 MB
13.9 MB
- Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska hefur að geyma þýtt notandaviðmót fyrir eftirfarandi Microsoft Office 2013-forrit:
- Microsoft Excel® 2013
- Microsoft OneNote® 2013
- Microsoft Outlook® 2013
- Microsoft PowerPoint® 2013
- Microsoft Word® 2013
Með því að nota Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska, geta notendur unnið í studdum tungumálaútgáfum úr upphaflegri uppsetningu Office-forrita og séð skipanir og valkosti fyrir þessi forrit á íslensku.
Við uppsetningu á Microsoft Office Language Interface Pack 2013 eru skrár sem gera notendum kleift að breyta tungumáli notandaviðmóts, afritaðar á viðtökudisk. Eftir uppsetningu eru eiginleikar og samsvarandi valkostir Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska tiltækir úr forritum Office 2013 og Microsoft Office 2013 tungumálastillingarforritinu.
Studd stýrikerfi
Windows 7, Windows 8
Microsoft Windows 7 - 32 eða 64 bita OS
Microsoft Windows 8 - 32 eða 64 bita OS
Athugaðu: Vinsamlegast gakktu úr skugga um að nýju uppfærslupakkarnir fyrir stýrikerfið þitt séu uppsettir til að tryggja hámarksstuðning fyrir tungumál þitt.
Hugbúnaður Allar útgáfur af Office 2013, í pakka eða ein og sér, sem innihalda Microsoft Excel, Microsoft OneNote, Microsoft Outlook, Microsoft PowerPoint eða Microsoft Word eða sem munu styðja Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska. Athugaðu: Vinsamlegast gakktu úr skugga um að nýjustu Microsoft Office-uppfærslupakkarnir séu uppsettir fyrir þínar Microsoft Office-vörur. Það tryggir betra notandaumhverfi.
Tölva og örgjörvi 1 GHz örgjörvi með SSE2 stuðningi eða meira; 2 GB RAM eða meira
Diskpláss Til viðbótar við harða diskplássið sem notað er af uppsettum Office 2013-forritum,
- 3 GB af tiltæku diskplássi.
- Allar aðrar kerfiskröfur eru þær sömu og fyrir þau Office 2013-forrit sem þú ert að nota með Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska.
Windows-tungumálaviðmótspakki Mælt er með því að nýjustu tungumálaviðmótspakkarnir fyrir Windows 7 eða Windows 8 séu uppsettir svo að tungumálastuðningur fyrir stýrikerfi þitt og forrit sé sem bestur.
Skjáupplausn og DPI-stillingar Margar leturgerðir hafa verið búnar til svo að lestur verði sem bestur í 1366 x 768 upplausn. Eigir þú í vandræðum með að lesa leturgerðina fyrir tungumál þitt, skaltu vinsamlegast uppfæra skjástillingar þínar í þessa upplausn eða hærri ef nauðsyn krefur. Vinsamlegast athugaðu: við mælum með því að þú notir Office 2013-forritin í sjálfgefinni DPI-stillingu Windows - 96 DPI. Sé stillingin 120 DPI notuð getur það valdið því að notandaumhverfi sé ekki sem skyldi í sumum Office-forritum þar sem stærð á samskiptagluggum Office eykst.
Valkostir landa og tungumála Ennfremur er mælt með því að öllum Valkostir landa og tungumála í Stjórnborð eru stilltar á tungumál Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska.
- Uppsetning:
- Sæktu forritið LanguageInterfacePack.exe með því að smella á hnappinn Sækja (hér að ofan) og vista skrána á harða disknum.
- Tvísmelltu á forritsskrána LanguageInterfacePack.exe á harða disknum til að ræsa uppsetningarforritið.
- Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að ljúka uppsetningunni.
- Þegar uppsetningu er lokið er "readme" skráin fyrir Microsoft Office 2013 tungumálapakkann aðgengileg á C:\Program Files\Common Files\microsoft shared\OFFICE15\1039\LIPread.htm.
- Uppfærsla á Office 2010 með Office 2010-tungumálaviðmótspakkanum eða eldri útgáfu á Office 2013 með Office 2013-tungumálaviðmótspakkanum er ekki studd. ekki studd. Viljir þú uppfæra uppsetningu þína á Office 2010 í Office 2013 með Office 2013 tungumálaviðmótspakkanum skalt þú:
- Fjarlægðu Office 2010-tungumálapakkann.
- Keyrðu uppsetningu á Office 2013 og veldu uppfærsluvalkostinn.
- Þegar uppsetningu á Office 2013 er lokið, skaltu setja upp og grunnstilla Office 2013-tungumálaviðmótspakkann.
Eigir þú í vandræðum með að lesa allan uppsetningarkóðann í svarglugganum "Leiðsagnarforrit virkjunar á Microsoft Office", eða uppsetningarkóðinn sést ekki allur rétt þegar Microsoft Office Language Interface Pack 2013 er notaður, skaltu vinsamlegast loka leiðsagnarforritinu og skipta yfir á ensku (Bandaríkin) vöruna til að virkja Microsoft Office-vöruna.
Leiðbeiningar um notkun:
Ef þú vilt breyta notandaviðmótinu í tungumál Microsoft Office Language Interface Pack 2013 – íslenska, skaltu fylgja þessum skrefum:
- Ræsa Microsoft Office 2013-tungumálakjörstillingar úr valmyndinni Byrja\Öll forrit\Microsoft Office\Microsoft Office Tools.
- Undir Velja tungumál fyrir skjá og hjálp, undir Tungumál viðmóts skaltu velja tungumálið og smelltu svo á hnappinn Velja sem sjálfgefið.
- Undir Velja tungumál ritunar, skaltu velja tungumálið og smelltu svo á hnappinn Velja sem sjálfgefið.
- Smelltu á hnappinn Í lagi.
Tungumálastillingarnar sem þú valdir taka gildi næst þegar þú ræsir Office-forrit.
Athugaðu: Ekki er hægt að breyta Hjálp í tungumál Microsoft Office Language Interface Pack 2013 – íslenska. Hjálp verður alltaf á tungumáli upphaflegu uppsetningarinnar.
Stilltu alltaf hjálpina í fellilistanum á grunntungumálið.
Uppsetningarskráin fjarlægð:
- Lokaðu öllum Microsoft Office-forritum.
- Tvísmelltu á táknið Forrit og aðgerðir Í Stjórnborði Stjórnborð.
- Í valkostinum Fjarlægja eða breyta forriti skaltu smella á Microsoft Office Language Interface Pack 2013 – íslenska í rammanum Uppsett forrit og velja svo valkostinn Fjarlægja .
- Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.